top of page

Vinnustaðamat

Spurningalistinn hér að neðan er gagnlegt tæki til að meta stöðu málaflokksins í upphafi stefnumótunar eða áætlunargerðar.

Hann er hugsaður til að meta stöðu málaflokksins á vinnustaðnum og gefa fólki færi á að forgangsraða áherslum, verkefnum og aðgerðum til skemmri og lengri tíma.

Hægt er að reikna út niðurstöðu með því að veita 1-4 stig fyrir hvert svar (1 fyrir a og 4 fyrir d) og sjá hversu fjarri hámarks stigafjölda (40 stigum) vinnustaðurinn er.

(Við mælum með að taka blað og penna til að rita niður svörin þín)

STAÐA JAFNRÉTTIS, FJÖLBREYTILEIKA OG INNGILDINGAR (JFI) Á VINNUSTAÐNUM

1. Hvernig er málaflokki JFI fyrir komið á vinnustaðnum?

a) Hér er lítið unnið með málaflokkinn og við teljum enga þörf á að breyta því

b) Við teljum mikilvægt að skoða hvernig við getum bætt okkur í málaflokknum

c) Málaflokkurinn er mikilvægur og mannauðsdeildin sér um að hann sé reglulega á dagskrá

d) JFI er einn kjarnaþátta starfseminnar og við höfum sérfræðinga í vinnu til að sinna málaflokknum

2. Er stefna í málaflokki JFI á vinnustaðnum?

a) Nei, við höfum enga sérstaka stefnu í málaflokknum

b) Við erum með lögbundna jafnréttisstefnu en viljum gjarnan fara í vinnu við að endurskoða hana og útvíkka

c) Við erum með stefnu í málaflokknum, en hún hefur ekki verið innleidd að fullu

d) Við erum með JFI-stefnu og aðgerðaráætlun sem er fylgt eftir reglulega á fundum framkvæmdastjórnar

3. Hvaða fjármagn er sett í JFI á vinnustaðnum?

a) Það er ekki gert ráð fyrir neinum kostnaði í málaflokknum

b) Við höfum ekki skilgreint fjármagn en munum skoða það í fyrirhugaðri stefnumótun

c) Það er greitt fyrir afmörkuð verkefni í málaflokknum, en hann er ekki hluti af fjárhagsáætlun fyrirtækisins

d) Gert er ráð fyrir fjármagni í málaflokkinn eins og aðra kjarnaþætti starfseminnar

4. Hvernig er farið með tilkynningar um útilokun, mismunun, áreitni eða ofbeldi á vinnustaðnum?

a) Það eru engir formlegir ferlar um það

b) Við viljum gjarnan koma upp ferlum til að taka á slíkum málum en höfum ekki gert það ennþá

c) Við erum með ferla sem fara í gang ef slík mál koma upp

d) Við erum með ferla sem ganga út frá forsendum brotaþola. Þeir fara í gang þegar slík mál koma upp. Auk þess erum við með reglulegar umræður um inngildandi og öruggt vinnuumhverfi til að draga úr líkunum á að slík mál komi upp

5. Hvernig eru umræður um JFI á vinnustaðnum?

a) Málaflokkurinn kemur sjaldan til tals

b) Það eiga sér stundum stað heitar umræður um stöðu mála í samfélaginu

c) Haldnir eru fundir um málaflokkinn með reglulegu millibili, t.d. í tengslum við Pride eða kvennafrídag

d) Málaflokkurinn er reglulega á dagskrá á öllum stigum starfseminnar eins og aðrir kjarnaþættir

6. Hversu mikil þekking á JFI er til staðar á vinnustaðnum?

a) Hér er lítil þekking á málaflokknum og við teljum þörf á að auka hana

b) Við þurfum að bæta þekkingu á málaflokknum, enda er hann mikilvægur

c) Við höfum staðið fyrir vitundarvakningu um málaflokkinn á vinnustaðnum

d) Jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding er mikilvægur hluti af samþykktri fræðsluáætlun vinnustaðarins

7. Hversu meðvitað er starfsfólk vinnustaðarins um ómeðvitaða hlutdrægni?

a) Það hefur engin umræða átt sér stað um það á vinnustaðnum

b) Þessi mál hafa komið til tals en það hefur engin fræðsla átt sér stað

c) Það hafa verið haldin námskeið um þessa hluti og starfsfólk þekkir hugtakið

d) Námskeið um ómeðvitaða hlutdrægni eru hluti af grunnfræðslu starfsfólks og við vinnum stöðugt að því að lágmarka áhrif hlutdrægni á starfsemina

8. Hvernig er stuðlað að auknum fjölbreytileika á vinnustaðnum?
a) Það eru engin áform uppi um slíkt
b) Við viljum gjarnan auka fjölbreytleika en höfum ekki gripið til beinna aðgerða
c) Við höfum tekið þátt í átaksverkefnum til að fjölga fólki af ólíkum kynjum
d) Við erum með skýra stefnu um að auka fjölbreytileika innan fyrirtækisins og hvernig við getum haldið starfshópi fyrirtækisins fjölbreyttum til frambúðar
9. Hversu rík áhersla er á JFI af hálfu stjórnenda fyrirtækisins?
a) Það er engin sérstök áhersla á slíkt meðal stjórnenda
b) Stjórnendur eru að jafnaði áhugasamir um JFI en koma ekki að málaflokknum með beinum hætti
c) Fræðsla um JFI fyrir stjórnendur fer fram með reglulegum hætti og þau fá stuðning frá mannauðsdeild eftir þörfum
d) Stjórnendur hafa haldbæra þekkingu á málaflokknum og vinna markvisst í honum á öllum stigum starfseminnar.

Lokaskref

Þið hafið nú lykilinn að breytingu í höndunum!

👉 Úr niðurstöðunum má sækja innblástur til að skapa vinnustað þar sem allir blómstra.

👉 Veljið ykkur fyrsta sigurmarkmið – og fögnum hverju skrefi á leiðinni.

Næst er að skoða hvar mest þarf að bæta og nýta til þess vegvísana okkar:

AÐ AUKA“ „AÐ NJÓTA“ og „AÐ META

bottom of page