top of page

Playbook Vertonet

Verið velkomin á vefsíðu Playbook Vertonet. Hér gefur að líta leiðarvísi að jafnrétti, fjölbreytileika og inngildingu á vinnustöðum sem er afrakstur átaksverkefnis fólks, fyrirtækja og stofanana til að auka nýliðun kvenna og kvára í upplýsingatækni á Íslandi. 

Playbook Vertonet er og verður ókeypis og galopið verkfæri til að auðvelda fyrirtækjum og stjórnendum í upplýsingatækni að stíga markviss skref í átt að inngildandi vinnustaðamenningu.

Leiðarvísirinn inniheldur ábendingar, ráð og verkfæri fyrir upplýsingatæknifyrirtæki en má að sjálfsögðu nýta í þágu fleiri vinnustaða og atvinnugreina. Hann verður seint  tæmandi listi  eða skotheld uppskrift af öllu sem hægt er að gera, en ætlunin er að þróa leiðarvísinn áfram í samstarfi við notendur um ókomin ár. Við þiggjum gjarnan ábendingar um efni, ráðgjöf, tæki og tól, reynslusögur, gagnlega hlekki eða annað sem þið teljið geta gagnast.

AF HVERJU?

Við trúum því að inngildandi vinnustaðamenning auki líkur á að stelpur, konur og kvár líti á upplýsingatækni sem fýsilegan kost fyrir sig, og endist lengur í geiranum.

Jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru óumflýjanleg viðfangsefni á íslenskum vinnustöðum, hvort heldur sem litið er til lagalegra skuldbindinga, hagkvæmni eða samfélagslegrar ábyrgðar.

Verkfærakistan

Allar breytingar byrja með litlum skrefum. Verkfærakistan veitir þér tækin til að byggja upp vinnustað þar sem fjölbreytileiki blómstrar og allir finna sig velkomna. Hér fyrir neðan finnur þú innblástur, aðferðir og verkfæri til að efla jafnrétti og inngildingu — í dag og til framtíðar.

SJÁLFSPRÓF

Til að gera betur er nauðsynlegt að vita hvað hægt er að bæta. Því mælum við með eftirfarandi sjálfsprófum fyrir fólk og vinnustaði.

Ómeðvituð hlutdrægni

Ómeðvituð hlutdrægni er til staðar hjá langflestu fólki, en hún segir til um hvernig heilinn tengir saman ólíka hluti án þess að við tökum ákvörðun þar um. Hún er oftast í ósamræmi við sjálfsmynd okkar og á skjön við opinberar skoðanir.

 

Harvard hefur útbúið gagnlegt próf sem hjálpar til við að greina eigin ómeðvituðu hlutdrægni og stuðlar að aukinni sjálfsvitund. Niðurstöður prófanna hjálpa okkur að horfast í augu við eigin ófullkomleika og brýna okkur í að vera gagnrýnin á eigin framkomu, hegðun og ákvarðanir.

Vinnustaðamat

Þessi spurningalisti er hannaður sem hluti af verkfærakistu okkar til að styðja vinnustaði við að bæta stefnu og aðgerðir í málefnum jafnréttis og fjölbreytileika.

 

Hann er ætlaður til að hjálpa ykkur að meta stöðuna á vinnustaðnum, forgangsraða áherslum og móta markviss skref til framtíðar – bæði til skemmri og lengri tíma.

VEGVÍSAR

Fjölbreytileiki skiptir máli á öllum stigum – hér eru lykilatriðin til að auka, njóta og meta hann á vinnustaðnum.

AÐ AUKA FJÖLBREYTILEIKANN

Stöðugri og vaxandi þörf fyrir sérfræðinga í upplýsingatækni verður ekki mætt af einsleitum hópi fólk svo vel sé. Því þarf atvinnugreinin og öll fyrirtæki sem innan hennar starfa að vera aðlaðandi fyrir fjölbreyttan hóp fólks.

AÐ NJÓTA FJÖLBREYTILEIKANS

Kostir fjölbreytileika á vinnustöðum nást aðeins fram ef öllu starfsfólki líður vel, ef komið er til móts við þarfir þeirra, hlustað á sjónarmið þeirra og framlag þeirra er metið að verðleikum. Til að halda í gott og fjölbreytt starfsfólk þarf að byggja upp inngildandi vinnustaðarmenningu.

AÐ META FJÖLBREYTILEIKANN

Inngildandi vinnustaðarmenning byggir ekki síst á því að fólk upplifi að framlag þess sé metið að verðleikum. Því er brýnt að starfslýsingar séu skýrar, að dreifing verkefna sé sanngjörn og að greidd séu sanngjörn laun fyrir öll verkefni sem unnin eru á vinnustaðnum.

Gagnlegar slóðir og enn fleiri tól

Hér má finna valdar slóðir að úrræðum og upplýsingum sem styðja við næstu skref í ferlinu – hvort sem um er að ræða fræðslu, innblástur, tengslamyndun eða ráðgjöf.

Playbook Vertonet er og verður ókeypis og galopið verkfæri til að auðvelda fyrirtækjum og stjórnendum í upplýsingatækni að stíga markviss skref í átt að inngildandi vinnustaðamenningu.​​

ÞAKKIR

Leikbókin tilheyrir okkur öllum
Við unnum hana saman – í vinnustofunni, í samtölum, í gegnum innsendingar og á sviði. Leikbókin endurspeglar fjölbreytileika og styrk samfélagsins. 

Fyrst og fremst: Hjartans þakkir til ykkar allra sem tókuð þátt í að setja inn efni, deila reynslu og sögum.

 

Þakkir til Ásdísar Eirar Símonardóttur og Sóleyjar Tómasdóttur, driffjaðra í smíðinni.

 

Að lokum viljum við sérstaklega þakka þeim sem tóku þátt í streyminu á "Smíðum saman" viðburðinum okkar, og voru örlát á tíma sinn og þekkingu: Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, opnaði viðburðinn af krafti. Einnig komu fram Sigrún Ámundadóttir, Sóley Tómasdóttir, Alex Diljar Birksbur Hellsing, Valgerður Hrund Skúladóttir, Freyr Guðmundsson, Charlotte Ólöf Jónsdóttir Biering, Kathryn Gunnarsson, Sigyn Jónsdóttir og Elísabet Ósk Stefánsdóttir, Þóra Rut Jónsdóttir og Ásdís Eir Símonardóttir.

 

Upptökur af samtölum okkar munu birtast fljótlega – enda er Playbookið lifandi skjal í stöðugri þróun og ítrun.​​​

Sérstakar þakkir færum við styrktaraðilum verkefnisins fyrir að gera þetta mögulegt:

WhatsApp Image 2025-04-29 at 22.42_edite
bottom of page