top of page

AÐ NJÓTA FJÖLBREYTILEIKANS

Kostir fjölbreytileika á vinnustöðum nást aðeins fram ef öllu starfsfólki líður vel, ef komið er til móts við þarfir þeirra, hlustað á sjónarmið þeirra og framlag þeirra er metið að verðleikum. Til að halda í gott og fjölbreytt starfsfólk þarf að byggja upp inngildandi vinnustaðarmenningu.

Leiðir til að skapa umhverfi þar
sem allir geta blómstrað

Hvað getum við gert?

Stefna fyrirtækisins í málaflokknum þarf að vera sameign alls starfsfólks, ekki á herðum kvenna, kvára og jaðarsetts fólks.

Stjórnendur þurfa að bera ábyrgð á:

  • Aðgerðaráætlun til að stuðla að framþróun málaflokksins.

  • Reglulegri fræðslu um ómeðvitaða hlutdrægni.

  • Að fyrirbyggja og bregðast við útilokandi hegðun, menningu og ferla.

  • Sanngjarna verkefnadreifingu.

  • Sanngjörn tækifæri til starfsþróunar, úrbóta og þroska.

Taka þarf ábendingum, kvartanir og reynslu alvarlega – sérstaklega frá jaðarsettum hópum.

Góð móttaka nýrra starfsmanna er lykilatriði – skýr, örugg og með góðri þjálfun

Aðlögun er gagnkvæm – starfsfólk aðlagast vinnustaðnum og öfugt.

Á vinnustaðnum þarf að vera hægt að horfast í augu við eigin mistök, læra af þeim og leiðrétta.

Skemmtanir þurfa að vera fyrir alla, með og án víns, fjölskylduvænar og fjölbreyttar.

Gott að hugsa um:

Hvernig er ákvarðanatöku háttað á vinnustaðnum?

  • Hver tekur ákvarðanir?

  • Hvar eru þær teknar? 

    • ​Á fundum? Á milli funda? Í símtölum?

  • Hvenær eru þær teknar?

    • ​​Á vinnutíma? Á kvöldin?

Hvernig er fundarmenningin?

  • Hver stýrir fundum?

  • Hverjir sitja alltaf hjá - og af hverju?​​

  • Er eitthvað í menningunni sem hindrar að fólk þori að taka þátt?​

  • Hver sér um "ósynilegu" vekerfnin? (Kaffi, rita fundargerðir, frágang)​​

  • Hver sér um úrvinnslu?

Þekking og umbun

  • Hversu vel þekkjum við starfsfólkið okkar?

  • Fyrir hvað erum við raunverulega að umbuna? 

    • Yfirvinnu eða frágang?​

  • Er verið að nota karl- eða kvenlæga starfstitla?

Mælikvarðar

Við getum ekki bætt það sem við mælum ekki.
Hér eru dæmi um mælikvarða sem hægt er að nota:

01

Starfsþróun, starfsmannavelta, starfsánægja - greind eftir kyni

02

Nýting fjarvinnu - greind eftir kyni

03

Þátttaka í viðburðum, námskeiðum, ráðstefnum - greind eftir kyni

04

Skráning á formlegri endurgjöf, starfsmannasamtölum, starfsþróunarsamtölum - greind eftir kyni

05

Mentorar og þjálfarar - greindir eftir kyni

Þú ert á góðri leið!
– taktu næsta skref með því að líta á hina tvo vegvísana
bottom of page