top of page
Hvatningarverðlaun 2025 (4)_edited.jpg

Hvatningarverðlaun Vertonet

Ár hvert tilnefnir Vertonet einn handhafa hvatningarverðlauna. Tilgangur verðlaunanna er að heiðra einstaklinga sem hafa stutt sérstaklega vel við málstaðinn, lagt sitt að mörkum í að auka hlut eða sýnileika kvenna og kvára í upplýsingatækni og verið fyrirmynd fyrir aðra. 

Fyrrum Hvatningarverðlaunahafar

photo magga dora.JPG

Magga Dóra Ragnarsdóttir

Hvatningarverðlaun 2023

winner arnheidur.jpeg

Arnheiður Guðmundsdóttir

Arnheiður Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Ský - Skýrslutæknifélag Íslands hlaut Hvatningarverðlaun Vertonet fyrir árið 2023. Arnheiður er búin að vera í tölvutækni í tæp 40 ár og mikil fyrirmynd. Hún hefur lagt sitt af mörkum í að auka sýnileika kvenna og kvára í upplýsingatækni með UTmessunni og öðrum viðburðum.

Hvatningarverðlaun 2022

DRÖFN.png

Dröfn Guðmundsdóttir

Dröfn Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs hjá Origo, hlaut Hvatningarverðlaun Vertonet fyrir árið 2022. Dröfn og Origo hafa lagt sitt af mörkum í að gera tæknigeirann eftirsóknarverðari fyrir konur, fjölgað konum í tæknistörfum og stuðlað að fjölbreytileika innan geirans. Dröfn hefur sýnt í orði og borði hversu megnug hún er og hversu mikinn áhuga hún hefur fyrir því að hjálpa konum að öðlast framgöngu í sínu starfi innan tæknigeirans. Hún hefur búið til stefnu hjá sínu fyrirtæki sem miðar að því konum verði fjölgað í almennum störfum sem og stjórnunarstörfum og það hefur virkilega skilað árangri

Hvatningarverðlaun 2021

margrét.jpg

Dr. Margrét Vilborg Bjarnadóttir

Margrét hefur leitt PayAnalytics frá því að hún fékk hugmyndina, vinnur að tækniþróun og stjórnar samskiptum við viðskiptavini. Margrét er með próf í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands, doktorspróf í aðgerðargreiningu frá MIT og er dósent við Viðskiptaháskólann University of Maryland. Margrét Vilborg var ein af tíu sem voru tilnefnd til verðlaunanna Framúrskarandi ungir Íslendingar árið 2017 og hlaut aðalverðlaun Global Women Inventors & Innovators Network í júní 2019 fyrir starf sitt með PayAnalytics. Árið 2019 var Margrét valin Háskólakona ársins af Félagi háskólakvenna.

Hvatningarverðlaun 2020

Jóhanna vigdís.jpg

Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir

Jóhanna Vigdís tók við hlutverki framkvæmdastjóra Almannaróms, miðstöðvar um máltækni árið 2018 en fyrirtækið er sjálfseignarstofnun um eflingu máltæknilausna fyrir íslensku og vinnur að því að tryggja að íslenskan standi jafnfætis öðrum tungumálum í tækniheiminum. Áður en hún hóf störf hjá Almannaróm hefur hún starfað sem framkvæmdastjóri atvinnu- og alþjóðatengsla hjá Háskólanum í Reykjavík ásamt því að hafa staðið fyrir uppbyggingu atvinnulífstengsla hjá skólanum. 

Hún hefur margsinnis sýnt sig sem fyrirmynd og gegnt stjórnendastöðum við Listahátíð í Reykjavík, hjá Straumi fjárfestingabanka, Deloitte og Borgarleikhúsinu. Jóhanna Vigdís lauk AMP gráðu hjá IESE Business School í Barcelona árið 2015, MBA námi frá HR árið 2005 og meistaraprófi frá Háskólanum í Edinborg árið 2003.

Hvatningarverðlaun 2019

Sesselja.png

Sesselja Vilhjálmsdóttir

Sesselja Vilhjálmsdóttir  lauk grunnnámi sínu í hagfræði við Florida International University - College of Business og mastersnámi í Markaðsfræði við Háskólann í Reykjavík. Hún  er framkvæmdastjóri og stofnandi Tagplay með umfangsmikla reynslu og þekkingu af ýmiskonar frumkvöðlastarfsemi.

Hvatningarverðlaun 2024

Magga Dóra hefur þróað hugbúnað frá því á síðustu öld með fyrirtækjum af öllum stærðargráðum hérlendis og erlendis. Hún er með bakgrunn í sálfræði og tölvunarfræði og hefur lagt áherslu á að berjast fyrir hagsmunum notenda. Hún er stofnandi Mennskrar ráðgjafar sem hefur síðan 2020 fyrst og fremst unnið með stofnunum í opinbera geiranum við að ná betur til sinna þjónustuþega.

Tilnefning til Hvatningarverðlauna Vertonet 2025

Takk fyrir tilnefninguna!

bottom of page