AÐ AUKA FJÖLBREYTILEIKANN
Stöðugri og vaxandi þörf fyrir sérfræðinga í upplýsingatækni verður ekki mætt af einsleitum hópi fólk svo vel sé. Því þarf atvinnugreinin og öll fyrirtæki sem innan hennar starfa að vera aðlaðandi fyrir fjölbreyttan hóp fólks.
Leiðir að auka fjölbreytileika í
upplýsingatækni almennt:
Fjölbreytileiki byrjar á sýnileika.
Hvað getum við gert?
-
Bjóða upp á kynningar, undirbúnings- og kynningarnámskeið í faginu.
-
Sýna mannlegu hliðar upplýsingatækninnar: þjónustu, sköpunargleði, greiningarvinnu, samskipti og verkefnastjórnun – ekki bara forritun.
-
Tefla fram fjölbreyttum fyrirmyndum og málsvörum geirans.
-
Bjóða upp á vísindaferðir og kynna þar fjölbreyttan hóp starfsfólks.
Auglýsingar og ráðningar:
Þannig höfum við áhrif
Ráðningarferli sem talar til margbreytileikans skapar ný tækifæri.
Gott að hafa í huga þegar við auglýsum:
-
Forðumst staðalmyndir í myndmáli og notum kynhlutlaust tungumál
-
Lýsum öllum hliðum starfsins, ekki bara tæknilegum.
-
Setjum fram hóflegar og aðgengilegar kröfur.
-
Gerum kröfu um vilja til að vinna með fjölbreyttum hópi.
-
Segjum frá stefnu og aðgerðum í þágu jafnréttis, fjölbreytileika og inngildingar
-
Útskýrum aðgengi og vinnuumhverfi.
Þegar umsóknarfrestur er liðinn...
Þá byrjar það sem skiptir mestu máli: sanngjörn og inngildandi yfirferð á umsóknum.
Gott verklag:
-
Rifjum upp áhrif staðalmynda og ómeðvitaðrar hlutdrægni.
-
Gefum okkur nægan tíma og veljum fjölbreytt ráðningarteymi.
-
Skilgreinum skýrt hvað þarf til að umsókn fari í „já“, „nei“ eða „kannski“.
-
Höfum í huga að útlit, líkamsgerð, talsmáti, hreimur og sjálfstraust getur haft áhrif á mat – án þess að segja neitt um hæfni.
-
Metum umsóknir án persónugreinanlegra upplýsinga ef mögulegt (þó það sé ekki trygging).
-
Notum skýran og samræmdan spurningaramma í viðtölum.
-
Ræðum reglulega:
„Eru ákvarðanir okkar undir áhrifum ómeðvitaðrar hlutdrægni?“
Spurningar sem gott er að hafa í huga daglega
-
Hvernig tölum við um vinnustaðinn okkar?
-
Notum við karllægt tungumál í útgefnu efni?
-
Eru kröfur okkar á vinnustaðnum sanngjarnar?
-
Hvaða fólk kemur oftast fram fyrir hönd vinnustaðarins?
Mælikvarðar um fjölbreytileika
Við getum ekki bætt það sem við mælum ekki.
Hér eru dæmi um mælikvarða sem hægt er að nota:
01
Kynjafjölbreytileiki, húðlitur, líkamsgerð og tungumálakunnátta fólks sem kemur fram fyrir hönd vinnustaðarins og í útgefnu efni á hans vegum.
02
Fólk sem kemur fram fyrir hönd vinnustaðarins og í útgefnu efni á hans vegum, greint eftir kyni (og öðrum breytum ef hægt er)
03
Umsækjendur greindir eftir kyni (og öðrum breytum ef hægt er)
04
Fjöldi í viðtölum greindur eftir kyni (og öðrum breytum ef hægt er)
05
Ráðnir einstaklingar greindir eftir kyni (og öðrum breytum ef hægt er)
06
Starfsfólk í ólíkum stöðum, bæði lárétt (eftir ólíkum deildum) og lóðrétt (eftir stöðu í skipuriti) greint eftir kyni (og öðrum breytum ef hægt er)