AÐ META
FJÖLBREYTILEIKANN
IInngildandi vinnustaðarmenning byggir ekki síst á því að fólk upplifi að framlag þess sé metið að verðleikum. Því er brýnt að starfslýsingar séu skýrar, að dreifing verkefna sé sanngjörn og að greidd séu sanngjörn laun fyrir öll verkefni sem unnin eru á vinnustaðnum.
Virðismat starfa á að vera á ábyrgð stjórnenda, þar sem verðmætið fer að mestu leyti eftir starfslýsingu en mjög litlu leyti eftir því hver ræðst í starfið.
Að meta framlag allra að verðleikum
Þegar fólk finnur að það sé tekið alvarlega og framlag þess metið, þá dafnar inngilding. Það þarf að vera skýrt hver gerir hvað – og að allir fái sanngjarna umbun.
Hvað getum við gert?
-
Skýrar starfslýsingar og sanngjörn verkaskipting.
-
Sanngjörn laun fyrir öll verkefni – líka þau sem ekki sjást alltaf.
-
Virðismat starfa byggist á lýsingum – ekki einstaklingum.
-
Gagnsæi með opinberum launatöflum eykur traust og dregur úr mismunun.
-
Rýna reglulega í sanngirni, greiðslur og verkefni.
Gott að hafa í huga:
-
Er fólk í sömu stöðu fái mishá laun eftir deildum? – og er það réttlætanlegt?
-
Eru verkefni unnin í á vinnustaðnum sem ekki eru í starfslýsingu og þar með ekki greitt fyrir?
-
Er ákveðið starfsfólk oftar í íhlaupum en annað – og fær það greitt fyrir það?
-
Er greitt fyrir setu í nefndum í á vinnustaðnum? Hvaða nefndum og hvaða ekki? Er það réttlætanlegt?
Mælikvarðar
Við getum ekki bætt það sem við mælum ekki.
Hér eru dæmi um mælikvarða sem hægt er að nota:
01
Heildarlaun, yfirvinna og aðrar greiðslur - greind eftir kyni
02
Greining á heildarlaunum eftir deildum (lárétt) og eftir ólíkum stöðum í skipuriti (lóðrétt)